Félagsmálaráðuneyti

1650/2021

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breyt­ingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. 278.271  3.339.252 
Hálfur ellilífeyrir, skv. 2. mgr. 23. gr. 139.136  1.669.632 
Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr.  52.631   631.572
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr.  38.908   466.896
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr.  52.631   631.572
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr.  38.540   462.480
Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr.  52.631   631.572
Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. 168.542  2.022.504 
     
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr.   83.533 1.002.396 
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. 4.057    
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr.   38.540   462.480

 

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breyt­ingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2022:

  kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr.  11.158   133.896
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum    
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr.  29.009   348.108
Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr.  38.540   462.480
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 208.532  2.502.384 
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 176.937  2.123.244 
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr.  57.406   688.872
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr.  43.002   516.024
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr.  52.631   631.572
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr.  70.317   843.804
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr.  56.969   683.628
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr.  19.453   233.436

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1333/2020, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2021.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica