Félagsmálaráðuneyti

1331/2020

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2021 samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks samkvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2021:

  1. Hámarksfjárhæð skv. 3. mgr. 11. gr. skal nema 892.826 kr. á mánuði.
  2. Greiðsla til foreldris í námi skv. 14. gr., sbr. 1. mgr. 16. gr., skal nema 250.431 kr. á mánuði.
  3. Grunngreiðsla skv. 1. mgr. 19. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., skal nema 250.431 kr. á mánuði.
  4. Barnagreiðslur skv. 1. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 36.845 kr. á mánuði.
  5. Sérstakar barnagreiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. laganna skulu nema 10.667 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 27.733 kr. á mánuði vegna þriggja barna.
  6. Frítekjumark skv. 2. mgr. 22. gr. skal vera 86.301 kr. á mánuði.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr. og 2. mgr. 22. gr., sbr. 31. gr., laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra lang­veikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2021. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1126/2019, um fjárhæðir greiðslna og frítekjumarks fyrir árið 2020 sam­kvæmt lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 21. desember 2020.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica