Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

1162/2018

Reglugerð um fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga fyrir árið 2019.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt II. kafla laga nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga skulu vera sem hér segir fyrir árið 2019:

  1. Dagpeningar, skv. 3. mgr. 11. gr., 2.210 kr. á dag.
  2. Dagpeningar vegna barns á framfæri, skv. 3. mgr. 11. gr., 496 kr. á dag.
  3. Örorkulífeyrir, (100%) skv. 12. gr., 46.481 kr. á mánuði, 557.766 kr. á ári.
  4. Dánarbætur, skv. a-lið, 1. mgr. 13. gr., 51.302 kr. á mánuði, 615.619 kr. á ári.
  5. Barnalífeyrir, skv. b-lið 1. mgr. 13. gr., 34.362 kr. á mánuði, 412.342 kr. á ári.
  6. Dánarbætur, skv. c-lið 1. mgr. 13. gr., 640.315-1.921.643 kr. eingreiðsla.
  7. Dánarbætur, skv. 2. mgr. 13. gr., 896.827 kr. eingreiðsla.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 25. gr. laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, sbr. 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019.

Velferðarráðuneytinu, 6. desember 2018.

Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.