Velferðarráðuneyti

1058/2017

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 787/2007 um heilsugæslustöðvar. - Brottfallin

1. gr.

Fyrirsögn V. kafla reglugerðarinnar verði: Starfsnám, vísindarannsóknir, þróun og gæði.

2. gr.

Á eftir 20. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein ásamt fyrirsögn, svohljóðandi, og breytist númera­röð annarra greina samkvæmt því:

Þróun og gæði.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leiðir faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu, vinnur að sam­ræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun og fram­förum í heilsugæslu í samráði við heilbrigðisstofnanir sem reka heilsugæslustöðvar.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. mgr. 17. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 20. nóvember 2017.

Óttarr Proppé
heilbrigðisráðherra.

Guðrún Sigurjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica