Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

961/2015

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (V).

1. gr. Gildistaka reglugerða framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1372/2013 og nr. 1368/2014.

Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1372/2013 frá 19. desember 2013 og nr. 1368/2014 frá 17. desember 2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 skulu öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2015 frá 30. apríl 2015 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum og bókun 1 við EES-samninginn.

Reglugerðirnar skulu gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2015.

2. gr. Efni.

Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðanna varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og heilbrigðisráðherra fer með.

Í reglugerð nr. 960/2015 er kveðið á um gildistöku reglugerðanna varðandi þau málefni sem talin er upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og félags- og húsnæðismálaráðherra fer með.

Í reglugerð nr. 962/2015 er kveðið á um gildistöku reglugerðanna varðandi þau málefni sem talin er upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta) og fjármála- og efnahagsráðherra fer með.

3. gr. Fylgiskjöl.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2015 sem birt verður í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB og reglugerðir framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1372/2013 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34 frá 18. júní 2015, bls. 170, og nr. 1368/2014, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 191, eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð félags- og húsnæðismálaráðherra.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð 55. gr., sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 9. október 2015.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Sveinn Magnússon.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.