Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

797/2018

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.

1. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Greiðsla kostnaðar vegna þjónustu tannlækna sem samið hefur verið um
skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar og fellur ekki undir
þjónustu tannlækna við börn, sbr. 5. gr.

Greiðslur til sjúkratryggðra samkvæmt þessum kafla skulu vera það hlutfall af gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands sem hér segir:

1. 100%: Vegna öryrkja og aldraðra sem eru langsjúkir og dveljast á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum eða hjúkrunarrýmum á öldrunarstofnunum, sbr. þó 8. gr. Auk þeirra vegna andlega þroskahamlaðra einstaklinga 18 ára og eldri, þó með þeim fyrirvara að áður en til fyrstu endurgreiðslu kemur þarf að sækja sérstaklega um hana.
2. 50%: Vegna annarra öryrkja og aldraðra, sbr. þó 8. gr. Sama rétt og aldraðir eiga þeir 60-66 ára sem njóta óskerts ellilífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins.

2. gr.

Orðin "1. og 3.-4. tölul." í 8. gr. reglugerðarinnar falla brott.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 29. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. september 2018.

Velferðarráðuneytinu, 22. ágúst 2018.

Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra.

Guðrún Sigurjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.