Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

615/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1148/2008 um gerð gæðavísa sem notaðir eru til að meta gæði og árangur innan heilbrigðisþjónustunnar.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast við eftirfarandi stafliðir:

  1. Veitendur heilbrigðisþjónustu: Þeir sem veita heilbrigðisþjónustu skv. c-lið.
  2. Landsgæðavísir: Gæðavísir, skv. b-lið, sem ákvarðaður er fyrir allt landið af embætti landlæknis og gefur kost á samanburði milli sams konar heilbrigðisstofnana eða heilbrigðisþjónustu.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

Við bætist ný 1. málsgrein, svohljóðandi og breytist röð annarra málsgreina samkvæmt því: Veitendur heilbrigðisþjónustu skulu velja gæðavísa sem lýsa gæðum þjónustunnar út frá sjónarhóli notenda, heilbrigðisstarfsmanna og stjórnenda.

Í stað orðsins "gæðavísa" í 1. mgr. 6. gr. kemur: landsgæðavísa.

Við bætist ný 3. málsgrein, svohljóðandi: Embætti landlæknis hefur eftirlit með að veitendur heilbrigðisþjónustu hafi valið sér gæðavísa, sem uppfylli gerðar kröfur skv. reglugerð þessari.

3. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Veitendur heilbrigðisþjónustu skulu birta upplýsingar um niðurstöður gæðavísa skv. 1. mgr. 6. gr. þannig að þær séu aðgengilegar fyrir notendur, heilbrigðisstofnanir, heilbrigðisstarfsmenn, stjórnendur og stjórnvöld.

Landlæknir skal birta upplýsingar um niðurstöður landsgæðavísa þannig að þær séu aðgengilegar fyrir notendur, heilbrigðisstofnanir, heilbrigðisstarfsmenn, stjórnendur og stjórnvöld.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 22. júní 2017.

Óttarr Proppé
heilbrigðisráðherra.

Margrét Björnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.