Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 7. feb. 2023

554/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1258/2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 273/2004 um forefni ávana- og fíkniefna.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), sem vísað er til í lið 15x í XIII. kafla II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2016 frá 18. mars 2016, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1258/2013 frá 20. nóvember 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 273/2004 um forefni ávana- og fíkniefna.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1258/2013, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016 frá 31. mars 2016, bls. 421.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 50. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2016.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Margrét Björnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.