Velferðarráðuneyti

116/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 555/2016. - Brottfallin

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðið "birtan" fyrir framan orðið fermetra í 1. mgr. fellur brott og í stað kemur: brúttó.
  2. Á eftir orðinu "fermetra" kemur: rýma byggingar í lokunarflokki A og B, skv. ÍST50.
  3. Í stað "265" í 1. mgr. kemur: 248; og í stað tölunnar "6" í sömu mgr. kemur: 5,6.
  4. Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Íbúðalánasjóður metur hag­kvæmni og hvort hlutfall sameignar sé eðlilegt miðað við fyrirhuguð not húsnæðis.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. mgr. 11. gr. laga um almennar íbúðir með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 30. janúar 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Ellý Alda Þorsteinsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica