Utanríkisráðuneyti

1106/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbíu, nr. 887/2015.

1. gr.Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.44   Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1334 frá 12. júní 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu , sbr. fylgiskjal 1.44.

2.42   Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1332 frá 12. júní 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 2.42.

2. gr.Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 7. október 2026.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 20. október 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica