2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023.
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vefsetri öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023.
6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 23. september 2026.
Daði Már Kristófersson.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 24. september 2026