Utanríkisráðuneyti

1026/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi belarús, nr. 97/2012.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.39  Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/1471 frá 18. júlí 2025 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.39.

2.44  Reglugerð ráðsins (EB) 2025/1472 frá 18. júlí 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.44.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 16. september 2025.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 30. september 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica