Utanríkisráðuneyti

498/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

 

3.76

Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/388 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.76.

 

4.84

Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/390 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.84.

 

5.7

Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/397 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol, fylgiskjal 5.7.

 

6.4

Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/401 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 692/2014 um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevastopol, sbr. fylgiskjal 6.4.

 

7.39

Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/394 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.39.

 

8.31

Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/395 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.31.

 

9.4

Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/396 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á ákvörðun 2022/266/SSUÖ um þvingunaraðgerðir til að bregðast við ólöglegri viðurkenningu, hernámi eða innlimun Rússneska sambandsríkisins á tilteknum svæðum sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar Úkraínu, sbr. fylgiskjal 9.4.

 

10.3

Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/398 frá 24. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/263 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við ólöglegri viðurkenningu, hernámi eða innlimun Rússneska sambandsríkisins á tilteknum svæðum sem lúta ekki stjórn ríkis­stjórnar Úkraínu, sbr. fylgiskjal 10.3.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 23. apríl 2025.

 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica