Utanríkisráðuneyti

494/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

 

1.32

Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/421 frá 24. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.32.

  2.39 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/419 frá 24. febrúar 2023 um framkvæmd 8. gr. a í reglugerð (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.39.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 8. maí 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica