Utanríkisráðuneyti

393/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.13 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/457 frá 2. mars 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrar­einingum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.13.
  2.14 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/449 frá 2. mars 2023 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.14.
  3.68 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/432 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.68.
  3.69 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/572 frá 13. mars 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.69.
  4.76 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/426 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.76.
  4.77 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/429 frá 25. febrúar 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.77.
  4.78 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/571 frá 13. mars 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.78.
  7.31 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/434 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.31.
  8.23 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/427 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgi­skjal 8.23.
  9.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/388 frá 20. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2022/266/SSUÖ um þvingunaraðgerðir til að bregðast við ólöglegri viðurkenningu, yfir­töku eða innlimunar Rússlands á ákveðnum héruðum í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkis­stjórnar, sbr. fylgiskjal 9.3.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þving­unar­aðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópu­­sambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 31. mars 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica