Utanríkisráðuneyti

219/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  3.66 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/193 frá 30. janúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.66.
  3.67 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/261 frá 6. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.67.
  4.74 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/192 frá 30. janúar 2023 um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.74.
  4.75 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/253 frá 6. febrúar 2023 um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.75.
  7.28 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/190 frá 27. janúar 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.28.
  7.29 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/191 frá 27. janúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.29.
  7.30 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/252 frá 4. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.30.
  8.20 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/180 frá 27. janúar 2023 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) 2022/2474 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þving­unar­aðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgi­skjal 8.20.
  8.21 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/250 frá 4. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.21.
  8.22 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/251 frá 4. febrúar 2023 um breytingu á reglu­gerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.22.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 21. febrúar 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica