Utanríkisráðuneyti

1715/2022

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Afganistan, nr. 1100/2013, með síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 2. gr. reglugerðarinnar:

  1.13 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/285 frá 18. febrúar 2019 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2011/486 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgi­skjal 1.13.
  1.14 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/153 frá 3. febrúar 2022 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2011/486 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrir­tækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 1.14.
  2.13 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/279 frá 18. febrúar 2019 um breytingu á reglu­gerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 2.13.
  2.14 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/148 frá 3. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrir­tækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, sbr. fylgiskjal 2.14.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða, nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 16. desember 2022.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica