Utanríkisráðuneyti

328/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:

  1.24 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/218 frá 17. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.24.
  1.25 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/307 frá 24. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.25.
  1.26 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/356 frá 2. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 1.26.
  1.27 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/399 frá 9. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.27.
  2.31 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/212 frá 17. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.31.
  2.32 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/300 frá 24. febrúar 2022 um framkvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 2.32.
  2.33 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/355 frá 2. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús, sbr. fylgiskjal 2.33.
  2.34 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/398 frá 9. mars 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.34.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 18. mars 2022.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica