Utanríkisráðuneyti

66/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.10 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/394 frá 4. mars 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrar­einingum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.10.
  2.10 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/391 frá 4. mars 2021 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.10.
  2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/2152 frá 6. desember 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.11.
  3.36 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/448 frá 12. mars 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.36.
  3.37 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1470 frá 10. september 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.37.
  3.38 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1792 frá 11. október 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.38.
  3.39 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2196 frá 13. desember 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.39.
  4.40 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/446 frá 12. mars 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.40.
  4.41 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/1464 frá 10. september 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.41.
  4.42 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/1791 frá 11. október 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.42.
  4.43 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/2193 frá 13. desember 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.43.
  5.5 Ákvörðun ráðsins 2021/1010/SSUÖ frá 21. júní 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/386/SSUÖ um þvingunaraðgerðir vegna ólöglegrar innlimunar Kríms og Sevasto­pol, sbr. fylgiskjal 5.5.
  7.11 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1144 frá 12. júlí 2021 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.11.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 11. janúar 2022.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica