Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

638/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Gíneu-Bissá, nr. 567/2014.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2012/285/SSUÖ frá 31. maí 2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá og um niðurfellingu ákvörðunar 2012/237/SSUÖ, sbr. fylgiskjal 1.
1.1 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/516/SSUÖ frá 24. september 2012 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 2.
1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/293/SSUÖ frá 18. júní 2013 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 3.
1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/415 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 1.3.
1.4 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/36 frá 10. janúar 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2012/285/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 1.4.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 377/2012 frá 3. maí 2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 4.
2.1 Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 458/2012 frá 31. maí 2012 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 5.
2.2 Framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 559/2013 frá 18. júní 2013 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 6.
2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/403 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 2.3
2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/31 frá 10. janúar 2018 um framkvæmd ákvæðis 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 377/2012 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum einstaklingum, rekstrareiningum og stofnunum sem ógna friði, öryggi eða stöðugleika í Lýðveldinu Gíneu-Bissá, sbr. fylgiskjal 2.4.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

2. gr. Fylgiskjöl.

Fylgiskjöl 1.3-1.4 og 2.3-2.4 eru birt með reglugerð þessari.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 17. maí 2021.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.