Utanríkisráðuneyti

1225/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:

  1.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/214 frá 17. febrúar 2020 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.12.
  1.13 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1388 frá 2. október 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.13.
  1.14 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1650 frá 6. nóvember 2020 um fram­kvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.14.
  2.19 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1387 frá 2. október 2020 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.19.
  2.20 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1648 frá 6. nóvember 2020 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. a reglugerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.20.

2. málsl. 3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 4. desember 2020.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica