Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1399/2018

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015, ásamt síðari breytingum:

1.11 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/398 frá 7. mars 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.11.
1.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2427 frá 21. desember 2017 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.12.
1.13 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/417 frá 16. mars 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.13.
2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/395 frá 7. mars 2017 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.8.
2.9 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2415 frá 21. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.9.
2.10 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/413 frá 16. mars 2018 um framkvæmd 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.10.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 6. nóvember 2018.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.