Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1377/2018

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe, nr. 744/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015 í réttri númeraröð:

1.11 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/224 frá 15. febrúar 2018 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.11.
1.12 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/227 frá 15. febrúar 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.12.
2.16 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/223 frá 15. febrúar 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.16.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 20. desember 2018.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.