Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

994/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Innleiðing gerða.

Töluliður 1.2 í 1. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 361/2016 um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu orðist svo: Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2054 frá 8. nóvember 2017 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB að því er varðar skrána yfir varnartengdar vörur (EES-viðbætir nr. 54, frá 23. ágúst 2018, bls. 270-306) sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2018, 6. júlí 2018.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4., 5., og 14. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 58/2010, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 6. nóvember 2018.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.