Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

1012/2017

Reglugerð um breyting á reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Innleiðing gerða.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum:

  1. Eftirfarandi gerð bætist við 1. mgr. 2. gr.:

    1.2 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/433 frá 7. mars 2017 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB að því er varðar skrána yfir varnartengdar vörur (EES-viðbætir nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 44-77), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2017, 7. júlí 2017.
  2. 2. tölul. 2. mgr. 2. gr. fellur niður (Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/970).

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4., 5., og 14. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 58/2010, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 9. nóvember 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.