Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

844/2017

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við í réttri númeraröð við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe nr. 744/2015:

1.10 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/288 frá 17. febrúar 2017 um breytingu á ákvörðun 2011/101/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Zimbabwe, fylgiskjal 1.10.
2.15 Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/284 frá 17. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 314/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Zimbabwe, fylgiskjal 2.15.

Eftirfarandi töluliðir í sömu grein skulu falla niður: 1.1-1.5, 1.7, 1.8, 2.2-2.7, 2.9, 2.10 og 2.12.

Í stað 2. og 3. mgr. 2. gr. kemur:

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vefjum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur". Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.