Utanríkisráðuneyti

841/2017

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:

  3.19 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1386 frá 25. júlí 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.19.
  3.20 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1418 frá 4. ágúst 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.20.
  4.22 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/1374 frá 25. júlí 2017 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.22.
  4.23 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/1417 frá 4. ágúst 2017 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.23.
  7.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1148 frá 28 júní 2017 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.7.

2. gr.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins.

Á eftir 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar bætist við ný málsgrein, sem verður 3. mgr., og hljóðar svo:

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í framangreindum gerðum, er birtur með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB frá 6. maí 2009 um að einfalda skilmála og skilyrði vegna tilflutnings varnartengdra vara innan Bandalagsins (EES-viðbætir nr. 56, 10. október 2013, bls. 801-836), ásamt síðari breytingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 111/2013, 14. júní 2013, og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur". Tilskipunin er innleidd með reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðar­lega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. september 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica