Utanríkisráðuneyti

58/2017

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:

  3.17 Ákvörðun ráðsins 2016/1961/SSUÖ frá 8. nóvember 2016 um breyting á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.17.
  4.20 Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1955 frá 8. nóvember 2016 um framkvæmd reglu­gerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.20.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 5. janúar 2017.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica