Utanríkisráðuneyti

897/2015

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Afganistan nr. 1100/2013.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Afganistan nr. 1100/2013 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2011/486/SSUÖ frá 1. ágúst 2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 1.
  1.1 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/167/SSUÖ frá 23. mars 2012 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 3.
  1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/334/SSUÖ frá 25. júní 2012 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 4.
  1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/393/SSUÖ frá 16. júlí 2012 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 5.
  1.4 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/454/SSUÖ frá 1. ágúst 2012 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 6.
  1.5 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/745/SSUÖ frá 3. desember 2012 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 7.
  1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/809/SSUÖ frá 20. desember 2012 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 8.
  1.7 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/73/SSUÖ frá 31. janúar 2013 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 9.
  1.8 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/145/SSUÖ frá 21. mars 2013 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 10.
  1.9 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2013/219/SSUÖ frá 16. maí 2013 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 11.
  1.10 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/140/SSUÖ frá 14. mars 2014 um framkvæmd ákvörðunar ráðsins 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 12.
  1.11 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/142/SSUÖ frá 14. mars 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 13.
  1.12 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/701/SSUÖ frá 8. október 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2011/486/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 14.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 frá 1. ágúst 2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 2.
  2.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 263/2012 frá 23. mars 2012 um framkvæmd 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum ein­staklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 15.
  2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 543/2012 frá 25. júní 2012 um framkvæmd 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum ein­staklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 16.
  2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 643/2012 frá 16. júlí 2012 um framkvæmd 1. og 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum ein­staklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástands­ins í Afganistan, fylgiskjal 17.
  2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 705/2012 frá 1. ágúst 2012 um framkvæmd 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 18.
  2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1139/2012 frá 3. desember 2012 um fram­kvæmd 1. og 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum ein­staklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástands­ins í Afganistan, fylgiskjal 19.
  2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1244/2012 frá 20. desember 2012 um fram­kvæmd 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 20.
  2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 86/2013 frá 31. janúar 2013 um framkvæmd 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum ein­stak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 21.
  2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 261/2013 frá 21. mars 2013 um framkvæmd 1. og 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum ein­stak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 22.
  2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 451/2013 frá 16. maí 2013 um framkvæmd 1. og 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn til­teknum ein­stak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 23.
  2.10 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 261/2014 frá 14. mars 2014 um framkvæmd 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum ein­stak­­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 24.
  2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 263/2014 frá 14. mars 2014 um framkvæmd 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstak­lingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Afganistan, fylgiskjal 25.
  2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 1057/2014 frá 8. október 2014 um fram­kvæmd 1. og 4. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 753/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum með tilliti til ástands­ins í Afganistan, fylgiskjal 26.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framan­greindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og upp­færslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóð­legra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lög­festingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og fryst­ingu fjármuna.

Sameiginlegur hergagnalisti Evrópusambandsins, sem vísað er til í a-lið 2. gr. reglugerðar ráðsins (ESB) nr. 753/2011, sbr. fylgiskjal 2 við reglugerð þessa, er birtur sem viðauki við tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/108/ESB, sbr. fylgiskjal 5 við reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 758/2014, sbr. reglugerð nr. 294/2015, og nefnist þar "Skrá yfir varnartengdar vörur."

Fylgiskjöl 3-26 (sem vísað er til í lið 1.1-1.12 og 2.1-2.12 hér að framan) eru birt sem fylgiskjöl 1-24 með reglugerð þessari.

2. gr.

Breytingar á viðaukum.

Viðaukinn við ákvörðun ráðsins 2011/486/SSUÖ, sbr. fylgiskjal 1 við reglugerð þessa, hljóði svo:

Viðaukinn við ákvörðun 2011/486/SSUÖ er ekki birtur hér en þess í stað vísast í listann sem var gerður og er viðhaldið af nefndinni sem var stofnuð samkvæmt ályktun öryggisráðsins nr. 1988 (2011) varðandi einstaklinga, rekstrareiningar, hópa og fyrirtæki (http://www.un.org/sc/committees/1988/list.shtml), sbr. 2. gr. reglugerðar um þving­unar­aðgerðir varðandi Afganistan nr. 1100/2013.

I. viðauki við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011, sbr. fylgiskjal 2 við reglugerð þessa, hljóði svo:

Viðaukinn við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 753/2011 er ekki birtur hér en þess í stað vísast í listann sem var gerður og er viðhaldið af nefndinni sem var stofnuð samkvæmt ályktun öryggisráðsins nr. 1988 (2011) varðandi einstaklinga, rekstrareiningar, hópa og fyrirtæki (http://www.un.org/sc/committees/1988/list.shtml), sbr. 2. gr. reglugerðar um þving­unar­aðgerðir varðandi Afganistan nr. 1100/2013.

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 16. september 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica