Utanríkisráðuneyti

160/2015

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Alþýðulýðveldið Kóreu.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

 

a)

ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,

 

b)

ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða

 

c)

ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunar­samtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.



Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópu­sambandsins er að ræða, þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa:

 

-

Fylgiskjal 1: Ákvörðun ráðsins 2013/183/SSUÖ frá 22. apríl 2013 um þvingunar­aðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu og niðurfellingu ákvörðunar 2010/800/SSUÖ.

 

-

Fylgiskjal 2: Ákvörðun ráðsins 2014/212/SSUÖ frá 14. apríl 2014 um breytingu á ákvörðun 2013/183/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 3: Ákvörðun ráðsins 2014/700/SSUÖ frá 8. október 2014 um breytingu á ákvörðun 2013/183/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 4: Reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 frá 27. mars 2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 5: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1283/2009 frá 22. desember 2009 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 frá 27. mars 2007 um þvingunar­aðgerðir gegn Alþýðu­lýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 6: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 567/2010 frá 29. júní 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 7: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1355/2011 frá 20. desember 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 8: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 137/2013 frá 18. febrúar 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 9: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 296/2013 frá 26. mars 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 10: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) nr. 370/2013 frá 22. apríl 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 11: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 696/2013 frá 22. júlí 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 12: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 386/2014 frá 14. apríl 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.

 

-

Fylgiskjal 13: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2014 frá 8. október 2014 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 329/2007 um þvingunaraðgerðir gegn Alþýðulýðveldinu Kóreu.



Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

 

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", ,,ESB", "Banda­lagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,

 

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,

 

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,

 

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,

 

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,

 

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.



4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir gagnvart Alþýðulýðveldinu Kóreu nr. 542/2011.

Utanríkisráðuneytinu, 26. janúar 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica