Utanríkisráðuneyti

935/2014

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Á eftir 15. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum, komi nýir töluliðir sem hljóði svo:

16)

 

Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/216/SSUÖ frá 14. apríl 2014 um fram­kvæmd ákvörðunar 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu.

17)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 381/2014 frá 14. apríl 2014 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu.

18)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/308/SSUÖ frá 28. maí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

19)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 577/2014 frá 28. maí 2014 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

20)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/475/SSUÖ frá 18. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

21)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 783/2014 frá 18. júlí 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

22)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/499/SSUÖ frá 25. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

23)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 810/2014 frá 25. júlí 2014 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

24)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 811/2014 frá 25. júlí 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

25)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/508/SSUÖ frá 30. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

26)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 826/2014 frá 30. júlí 2014 um fram­kvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

27)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu.

28)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu.



2. gr.

Fylgiskjöl.

Gerðir, sem vísað er til í 16.-28. tölul., eru birtar sem fylgiskjöl 1-13 við reglugerð þessa.

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 30. september 2014.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica