Utanríkisráðuneyti

456/2014

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sýrland.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildar­ríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðana­skipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr. og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar kemur fram um hvaða samþykktir er að ræða, þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar, eftir því sem við á.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir, ásamt viðaukum og leið­rétt­ingum, skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa:

 

-

Fylgiskjal 1: Ákvörðun ráðsins 2013/255/SSUÖ frá 31. maí 2013 um þving­unar­aðgerðir gegn Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 2: Ákvörðun ráðsins 2013/760/SSUÖ frá 13. desember 2013 um breyt­ingu á ákvörðun 2013/255/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 3: Ákvörðun ráðsins 2014/74/SSUÖ frá 10. febrúar 2014 um breytingu á ákvörðun 2013/255/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 4: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 36/2012 frá 18. janúar 2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi og niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 442/2011.

 

-

Fylgiskjal 5: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 168/2012 frá 27. febrúar 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 6: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 509/2012 frá 15. júní 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um tilteknar þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 7: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 545/2012 frá 25. júní 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um tilteknar þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 8: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 867/2012 frá 24. september 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um tilteknar þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 9: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 325/2013 frá 10. apríl 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 10: Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 363/2013 frá 22. apríl 2013 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 11: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 697/2013 frá 22. júlí 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 12: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1332/2013 frá 13. desember 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 13: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 124/2014 frá 10. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 36/2012 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Sýrlandi.

 

-

Fylgiskjal 14: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 305/2006 frá 21. febrúar 2006 um að leggja á tilteknar, takmarkandi ráðstafanir sem beint er að tilteknum aðilum sem eru grunaðir um aðild að morðinu á Rafiq Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons.



Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, land­göngu­bann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofn­anir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "banda­lagsins" eða "sameiginlega markaðarins") gilda um íslenska ríkisborgara, einstak­linga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.



4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerðum.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi f-liður 2. gr., c-liður 4. gr. og e-liður 5. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir sem varða Búrma/Mýanmar, Egyptaland, Gíneu, Íran, Líbýu og Sýrland nr. 870/2011.

Utanríkisráðuneytinu, 15. apríl 2014.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica