Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

298/2010

Reglugerð um breyting á reglugerð um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 119/2009.

1. gr.

Í stað 16. málsl. 2. gr. komi nýr málsliður sem hljóði svo:

Viðskiptabann tekur til innflutningsbanns, útflutningsbanns og sölubanns á hlutum og þjónustu.

2. gr.

Í stað a-liðar 1. mgr. 5. gr. komi nýr stafliður sem hljóði svo:

  1. sölu, útvegun, flutning eða útflutning á hergögnum sem eru:

    • ekki lífshættuleg og eingöngu eru ætluð í mannúðar- eða verndarskyni,
    • á vegum Sameinuðu þjóðanna, friðargæslusveita þeirra eða hafa verið heimiluð af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
    • á vegum íslenskra stjórnvalda eða annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins,

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

4. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 23. mars 2010.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.