Utanríkisráðuneyti

120/2009

Reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon. - Brottfallin

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon nr. 1636 (2005) og 1701 (2006) og ákvörðunum framkvæmdanefndarinnar um þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon, sbr. ályktun nr. 1636 (2005).

Ákvarðanir framkvæmdanefndarinnar, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunaraðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri hennar (http://www.un.org/Docs/sc/committees/1636Template.htm).

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Vopnasölubann.

Vopnasölubann skal gilda gagnvart Líbanon, en þó ekki ríkisstjórn Líbanons eða aðilum sem hún tilnefnir, sbr. 15. mgr. ályktunar nr. 1701 (2006).

3. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til á grundvelli ályktana öryggisráðsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum.

4. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

5. gr.

Heimild.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 20. janúar 2009.

Össur Skarphéðinsson.

Benedikt Jónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica