Í reglugerð þessari merkja "tæknilegar reglur" lög, reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem fela í sér eða vísa beint eða óbeint til tæknilýsinga, tæknilegra krafna eða annarra krafna og eru íþyngjandi við markaðssetningu eða notkun vöru eða banna framleiðslu, innflutning, markaðssetningu eða notkun vöru
Til tæknilegra reglna teljast einnig frjálsir samningar sem stjórnvöld eru aðilar að og kveða á um að tæknilegum kröfum sé hlítt.
Einnig falla undir skilgreininguna tæknilegar kröfur eða aðrar kröfur sem tengjast ráðstöfunum í skatta- eða peningamálum og hafa áhrif á neyslu vara með því að hvatt er til að tilteknum tæknilegum kröfum sé hlítt.
Til tæknilegra reglna í skilningi reglugerðarinnar teljast hins vegar ekki tæknilegar kröfur eða aðrar kröfur sem settar eru við opinber útboð eða við önnur innkaup hins opinbera eða tæknilegar reglur sem tengjast almannatryggingakerfinu.
Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands varðandi skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu sem geta haft í för með sér óheimilar tæknilegar viðskiptahindranir eru samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um tæknilegar viðskiptahindranir og stofnsamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu.
Hlutaðeigandi stjórnvald skal tafarlaust setja inn í gagnagrunn Evrópusambandsins tilkynningu um drög að tæknilegum reglum um vöru og fjarþjónustu sem lög um skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu, nr. 57/2000, taka til og fyrirhugað er að setja á málefnasviði þess. Hlutaðeigandi stjórnvald skal jafnframt tafarlaust upplýsa utanríkisráðuneytið um að tilkynning hafi verið sett í framangreindan gagnagrunn.
Ekki er þörf á tilkynningu samkvæmt reglugerð þessari um fyrirhugaða setningu tæknilegrar reglu sem:
Tilkynningar á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið skulu vera á ensku og í samræmi við leiðbeiningar um tilkynningar á tæknilegum reglum sem gefnar eru út af utanríkisráðuneytinu og eru birtar á vef Stjórnarráðs Íslands.
Tilkynningunni skulu fylgja í heild, á íslensku og ensku og á tölvutæku formi, drög að tæknilegu reglunni. Einnig skulu fylgja á ensku önnur þau gögn, þ.m.t. lög og reglugerðir, sem nauðsynleg eru til að meta inntak tilkynningarinnar. Drög að tæknilegum reglum skulu innihalda vísun til tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/1535 frá 9. september 2015 um tilhögun miðlunar upplýsinga um tæknireglugerðir og reglur um þjónustu í upplýsingasamfélaginu sbr. leiðbeiningar utanríkisráðuneytisins um tilkynningar á tæknilegum reglum.
Þegar tilkynnt er um tæknilega reglu á grundvelli annarra samningsskuldbindinga um tæknilegar viðskiptahindranir skal það gert í samráði við utanríkisráðuneytið.
Hafi drög að tæknilegri reglu að geyma ákvæði sem ætlað er að takmarka markaðssetningu eða notkun hreins efnis, efnablöndu eða vöru, vegna lýðheilsu eða í þeim tilgangi að vernda neytendur eða umhverfi, ber að láta fylgja tilkynningunni yfirlit um eða tilvitnun til allra tiltækra gagna sem geyma upplýsingar sem máli skipta um viðkomandi efni, efnablöndu eða vöru og þekkt og fáanleg staðgönguefni.
Jafnframt skal komið á framfæri upplýsingum um fyrirsjáanleg áhrif þessara ráðstafana á lýðheilsu, verndun neytenda eða umhverfis ásamt áhættumati sem fram fari, eftir því sem við á, í samræmi við meginreglur sem gilda um áhættumat kemískra efna.
Fresta skal formlegri setningu tæknilegra reglna um vörur um þrjá mánuði frá þeim degi sem tilkynnt var um fyrirhugaða setningu reglnanna til alþjóðastofnana samkvæmt 1. mgr. 2. gr., en um fjóra mánuði þegar um er að ræða tæknilegar reglur um fjarþjónustu.
Berist ítarleg álitsgerð frá Eftirlitsstofnun EFTA eða EFTA-ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins þess efnis að fyrirhuguð ráðstöfun kunni að hindra frjálsa vöruflutninga innan innri markaðarins, innan þriggja mánaða frá því að Eftirlitsstofnun EFTA tók á móti tilkynningu samkvæmt 1. mgr. 2. gr., lengist fresturinn samkvæmt 1. mgr. um:
A-liður 2. mgr. gildir ekki um útboðslýsingar í tengslum við opinber innkaup.
Berist athugasemdir frá Eftirlitsstofnun EFTA, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eða öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, við tilkynningu sem gerð hefur verið samkvæmt 1. mgr. 2. gr. skulu stjórnvöld taka athugasemdirnar til greina, að því marki sem unnt er, við síðari vinnu við tæknilegu regluna.
Berist ítarlegt álit frá Eftirlitsstofnun EFTA eða EFTA-ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins vegna tilkynningar sem gerð hefur verið samkvæmt 1. mgr. 2. gr., skulu stjórnvöld upplýsa utanríkisráðuneytið um hvaða aðgerða þau hyggjast grípa til að bregðast við álitinu og utanríkisráðuneytið kemur þeim upplýsingum á framfæri gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA.
Að því er varðar reglur um fjarþjónustu skulu stjórnvöld tilgreina, þegar við á, ástæður þess að ekki sé unnt að taka tillit til ítarlegs álits sem borist hefur frá Eftirlitsstofnun EFTA eða EFTA-ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Utanríkisráðuneytið ber ábyrgð á samskiptum við Eftirlitsstofnun EFTA, eða, eftir því sem við á, aðra viðkomandi erlenda aðila, vegna ítarlegra álita sem berast vegna tæknilegrar reglu sem hefur verið tilkynnt samkvæmt reglugerð þessari.
Drög að tæknilegri reglu um vörur eða fjarþjónustu skulu tilkynnt að nýju til Eftirlitsstofnunar EFTA samkvæmt 2. mgr. 3. gr. ef breytingar eru gerðar á þeim sem hafa í för með sér umtalsverðar breytingar á gildissviði þeirra, stytta upphaflegan tíma sem áætlaður var fyrir gildistöku, bæta við nýjum forskriftum eða kröfum eða herða þær sem fyrir eru.
Þegar tæknileg regla hefur öðlast gildi skal það stjórnvald sem undirbjó setningu hennar senda utanríkisráðuneytinu endanlegan texta hennar á tölvutæku formi sem kemur honum á framfæri við Eftirlitsstofnun EFTA.
Stjórnvöldum er heimilt að gera athugasemdir vegna tilkynningar á tæknilegri reglu frá öðru aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins í samræmi við leiðbeiningar utanríkisráðuneytisins um tilkynningar á tæknilegum reglum.
Stjórnvöldum er heimilt að senda ítarlegt álit vegna tilkynningar á tæknilegri reglu frá öðru EFTA-ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins í samræmi við leiðbeiningar utanríkisráðuneytisins um tilkynningar á tæknilegum reglum.
Athugasemdir og ítarleg álit vegna tilkynningar á tæknilegri reglu frá öðru ríki skulu vera á ensku og á tölvutæku formi.
Utanríkisráðuneytið ber ábyrgð á samræmingu þeirra athugasemda og ítarlegra álita sem berast.
Endanleg ákvörðun um efni athugasemda og ítarlegra álita skal tekin að höfðu samráði við utanríkisráðuneytið og þá er gert hafa athugasemdir.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 7. gr. laga um skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu, nr. 57/2000, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um tilkynningar á tæknilegum reglum um vörur og fjarþjónustu, nr. 440/2024.
Utanríkisráðuneytinu, 24. júní 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 29. júní 2026