Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 17. jan. 2024

380/2018

Reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela.

1. gr. Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.
1.1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/90 frá 22. janúar 2018 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, fylgiskjal 1.1.
1.3 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/901 frá 25. júní 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.3.
1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1656 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.4.
1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1171 frá 8. júlí 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.5.
1.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1596 frá 26. september 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.6.
1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1893 frá 11. nóvember 2019 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.7.
1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/898 frá 29. júní 2020 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.8.
1.9 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1700 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.9.
1.10 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/276 frá 22. febrúar 2021 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.10.
1.11 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1965 frá 11. nóvember 2021 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.11.
1.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2201 frá 10. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2017/2074 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 1.12.
1.13 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.13.
2. Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/2063 frá 13. nóvember 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.
2.1. Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/88 frá 22. janúar 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, fylgiskjal 2.1.
2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/899 frá 25. júní 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.2.
2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/1653 frá 6. nóvember 2018 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.3.
2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/1169 frá 8. júlí 2019 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.4.
2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/1586 frá 26. september 2019 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.5.
2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2019/1889 frá 11. nóvember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.6.
2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/1891 frá 11. nóvember 2019 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.7.
2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/897 frá 29. júní 2020 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.8.
2.9 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/1696 frá 12. nóvember 2020 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.9.
2.10 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/275 frá 22. febrúar 2021 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.10.
2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/1959 frá 11. nóvember 2021 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.11.
2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2194 frá 10. nóvember 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (ESB) 2017/2063 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, sbr. fylgiskjal 2.12.
2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.13.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr. Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  1. ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  2. ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  3. tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  4. tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  5. tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  6. utanríkisráðuneytið er hið lögbæra stjórnvald á Íslandi, vefsetur með frekari upplýsingum er:
    https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/lagamal/thvingunaradgerdir/

4. gr. Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr. Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.