Utanríkisráðuneyti

108/2019

Reglugerð um niðurfellingu reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Eritreu, nr. 290/2015. - Brottfallin

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Eritreu nr. 290/2015, ásamt síðari breytingum, er felld úr gildi.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 10. janúar 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica