Utanríkisráðuneyti

29/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:

  1.15 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/2130 frá 17. desember 2020 um fram­kvæmd ákvörð­unar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.15.
  2.21 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/2129 frá 17. desember 2020 um fram­kvæmd 1. mgr. 8. gr. reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.21.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 4. janúar 2021.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica