Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1095/2026

Reglugerð um verndar- og orkunýtingaráætlun.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr.Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um málsmeðferð samkvæmt 8.-11. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, vegna umfjöllunar verkefnisstjórnar um landsvæði þar sem er að finna virkjunarhugmyndir til orkuvinnslu, jafnt innan eignarlanda sem þjóðlendna.

II. KAFLI Verkefnisstjórn verndar- og orkunýtingaráætlunar.

2. gr.Skipun verkefnisstjórnar.

Verkefnisstjórn er skipuð af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og starfar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, og hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar við undirbúning tillagna að verndar- og orkunýtingaráætlun. Ráðherra gerir verkefnisstjórn erindisbréf.

Verkefnisstjórn gerir tillögu til ráðherra um starfsreglur eða um endurskoðun gildandi starfsreglna eftir því sem þörf krefur, sbr. 6. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011.

3. gr.Skipun faghópa.

Verkefnisstjórn ákveður fjölda faghópa, skipar fulltrúa í þá og getur breytt skipan þeirra eða lagt þá niður eftir því sem tilefni er til. Verkefnisstjórn skipar hverjum faghópi formann. Verkefnisstjórn velur til setu í faghópum fulltrúa sem spanna þau fræðasvið sem viðkomandi faghópi er ætlað að fjalla um. Samhliða skipun faghópa útbýr verkefnisstjórn og samþykkir erindisbréf þeirra.

Við skipun faghópa skal verkefnisstjórn gæta að hæfi fulltrúa samkvæmt stjórnsýslulögum eftir því sem við á.

4. gr.Ákvarðanir um rétt eða skyldu manna.

Í ráðgefandi starfi verkefnisstjórnar felst að hún tekur almennt ekki ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga.

5. gr.Verksvið verkefnisstjórnar.

Verkefnisstjórn annast upplýsingasöfnun og gerð tillagna til ráðherra vegna verndar- og orkunýtingaráætlunar og er samráðsvettvangur vegna hennar. Hún annast faglegt mat á orkunýtingargildi landsvæða og efnahagslegum, umhverfislegum og samfélagslegum áhrifum nýtingar og verndunar.

Verkefnisstjórn getur einnig ákveðið að endurmeta virkjunarhugmyndir og landsvæði að eigin frumkvæði telji verkefnisstjórn að forsendur hafi breyst, svo sem vegna nýrra eða betri upplýsinga eða tækninýjunga sem haft geta áhrif á upphaflega flokkun.

6. gr.Skipulagning starfs.

Eftir skipun faghópa fundar verkefnisstjórn með faghópum um hlutverk þeirra, verklag og aðferðarfræði.

Í samráði við formenn hvers faghóps fyrir sig, ákveður verkefnisstjórn umfang mats og afmörkun þeirra áhrifasvæða sem koma eiga til skoðunar hjá faghópum vegna einstakra virkjunarhugmynda.

7. gr.Vinnulag og samhæfing.

Formaður verkefnisstjórnar ber ábyrgð á daglegri vinnu verkefnisstjórnar og samhæfingu starfa faghópa og skal stuðla að opnum samskiptum og virkni við ákvarðanatöku. Formaður er tengiliður verkefnisstjórnar við ráðuneytið og við formenn einstakra faghópa.

Verkefnisstjórn og faghópar skulu viðhalda samfellu í vinnu sinni þannig að byggt sé á fyrirliggjandi rannsóknum, gögnum og niðurstöðum fyrri verkefnastjórna og faghópa nema ástæða sé talin til endurskoðunar eða breytinga vegna nýrra aðstæðna, rannsókna eða gagna.

8. gr.Fjárhagsáætlun og samningar

Innan þriggja mánaða frá skipun verkefnisstjórnar skal hún leggja fyrir ráðuneytið fjögurra ára rekstrar- og framkvæmdaáætlun, sundurliðaða eftir árum. Áætlunin skal m.a. taka til reksturs verkefnisstjórnar auk kostnaðar vegna rannsókna og gagnaöflunar sem verkefnisstjórn telur nauðsynlegan við framgang áætlunarinnar. Framkvæmd áætlunarinnar er háð fjárveitingum og samþykki ráðuneytisins hverju sinni.

Verkefnisstjórn skal haga skipulagningu rannsókna, gagnaöflun og samningsgerð vegna slíkra verkefna með þeim hætti að kostnaður rúmist innan samþykktrar fjárhagsáætlunar.

Gerðir skulu skriflegir samningar um öll rannsókna- og gagnaöflunarverkefni sem verkefnisstjórn ákveður að ráðast í. Að fengnu samþykki verkefnisstjórnar skulu samningar staðfestir af formanni verkefnisstjórnar áður en þeir eru samþykktir og undirritaðir af hálfu ráðuneytisins.

Telji verkefnisstjórn á starfstíma sínum nauðsynlegt að endurskoða fjárhagsáætlunina skal hún rökstyðja slíka beiðni ásamt því að leggja endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir ráðuneytið til samþykktar. Verkefnisstjórn er óheimilt að stofna til skuldbindinga vegna rannsókna eða gagnaöflunar sem fara fram úr samþykktri fjárhagsáætlun nema að fengnu samþykki ráðuneytisins.

9. gr. Framvinda og skil tillagna.

Leitast skal við að ljúka flokkun einstakra virkjunarhugmynda hjá verkefnisstjórn innan 24 mánaða frá því að Umhverfis- og orkustofnun sendir virkjunarhugmynd til umfjöllunar hjá verkefnisstjórn, sbr. 10. gr. laga nr. 48/2011.

Vinnslutími einstakra tillagna hjá faghópum skal að jafnaði ekki vera lengri en 12 mánuðir nema verkefnisstjórn fallist á annað. Að fengnum fullnægjandi niðurstöðum faghópa vinnur verkefnisstjórn innan fjögurra mánaða drög að tillögum um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða í samræmi við flokkunina, ásamt umhverfismati í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Verkefnisstjórn kynnir tillögurnar og leitar samráðs og umsagna um þær með opinberri auglýsingu á landsvísu þar sem öllum gefst kostur á að koma á framfæri athugasemdum innan ákveðins frests sem skal ekki vera skemmri en tólf vikur frá birtingu auglýsingar.

Að loknu samráðs- og kynningarferli, leggur verkefnisstjórn innan fjögurra vikna fyrir ráðherra rökstuddar tillögur um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun landsvæða í samræmi við flokkunina.

Verkefnisstjórn skilar ráðherra tillögum um flokkun virkjunarhugmynda eins oft og þurfa þykir og í samræmi við framgang vinnunnar.

10. gr.Tillögur verkefnisstjórnar.

Í tillögu verkefnisstjórnar til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða, skal gerð grein fyrir umfjöllun verkefnisstjórnar og faghópa. Reifaðar skulu heildarniðurstöður faghópa og þær bornar saman við niðurstöður fyrra mats á viðkomandi virkjunarhugmyndum. Fara skal yfir aðferðarfræði við að komast að umræddri niðurstöðu og gerð grein fyrir áhrifum einstakra matsþátta á hana.

Dregnar skulu saman helstu niðurstöður og athugasemdir sem fram komu við almennt samráð um drög að tillögu um flokkun og hvort eða hvernig hafi verið brugðist við þeim.

Í tillögunni skal vera skýr, hnitmiðuð og rökstudd samantekt á mati faghópa og niðurstöðum verkefnisstjórnar um þær virkjunarhugmyndir sem lagt er til að fari í nýtingarflokk eða verndarflokk áætlunarinnar. Í báðum tilvikum skal fylgja hnitsett afmörkun fyrirhugaðra virkjunarsvæða eða þeirra svæða sem verkefnisstjórn leggur til að falli í verndarflokk áætlunarinnar.

Sé lagt til að virkjunarhugmynd fari í biðflokk áætlunarinnar þar sem afla þurfi frekari upplýsinga eða gagna um virkjunarhugmyndina skal gerð grein fyrir hvaða upplýsingar eða gögn skorti og hver afli þeirra.

Sé lagt til að virkjunarhugmynd fari í nýtingarflokk skal í samantektinni jafnframt gera ítarlega grein fyrir meginforsendum verkefnisstjórnar sem lagðar eru til grundvallar þannig að skýrt sé hvaða áhrif breytingar eða tækniþróun eftir samþykki í nýtingarflokk, eins og t.d. breytingar á fjölda og hæð vindmylla án breytinga á heildarafli virkjunar, kunni að hafa á forsendur flokkunar hennar í nýtingarflokk.

III. KAFLI Beiðni um að virkjunarhugmynd verði tekin til meðferðar hjá verkefnisstjórn.

11. gr.Umhverfis- og orkustofnun.

Beiðni um að verkefnisstjórn fjalli um virkjunarhugmynd skal send Umhverfis- og orkustofnun. Stofnunin yfirfer beiðnina og ef virkjunarhugmynd er að mati hennar nægilega skilgreind í samræmi við 9. gr. laga nr. 48/2011 og reglugerð þessa skal verkefnisstjórn fá hana til umfjöllunar innan fjögurra vikna.

Sé það niðurstaða Umhverfis- og orkustofnunar að beiðni sé ófullnægjandi eða gögn vanti skal stofnunin svo fljótt sem verða má tilkynna umsækjanda um þá niðurstöðu með formlegum hætti og óska eftir þeim viðbótargögnum eða viðbótarupplýsingum sem á skortir til að unnt sé að taka fyrirhugaða virkjun til mats. Eftir að fullnægjandi viðbótargögn berast stofnuninni skal beiðnin ásamt meðfylgjandi gögnum send verkefnisstjórn innan fjögurra vikna frá móttöku þeirra.

12. gr. Verkefnisstjórn.

Telji verkefnisstjórn, þrátt fyrir 1. mgr. 11. gr., að virkjunarhugmynd sé ekki nægilega skilgreind, eða að gögn sem henni fylgja uppfylli ekki skilyrði greinarinnar, skal hún innan fjögurra vikna frá því henni barst beiðnin óska skriflega eftir því við Umhverfis- og orkustofnun að hún afli þeirra viðbótargagna eða -upplýsinga sem nauðsynleg eru til að unnt sé að flokka virkjunarhugmyndina. Fer um slíka málsmeðferð skv. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011, sbr. 2. mgr. 11. gr. reglugerðar þessarar.

IV. KAFLI Gögn sem fylgja þurfa beiðni um umfjöllun verkefnisstjórnar.

13. gr.Gögn sem fylgja skulu öllum virkjunarhugmyndum.

Eftirtalin gögn og upplýsingar skulu fylgja beiðnum um umfjöllun um allar virkjunarhugmyndir:

  1. mörk áætlaðra áhrifa- og virkjunarsvæða á hnitsettum uppdrætti,
  2. staðsetning, útlínur og hæð helstu mannvirkja, þ.m.t. og eftir því sem við á borholur og pípulagnir, stíflur, varnargarðar, skurðir, lón, vegir, efnistökustaðir, tippar, stöðvarhús, spennistöðvar, nauðsynlegar línulagnir, vindmyllur, sólarsellur og önnur mannvirki sem eru órjúfanlegur hluti af fyrirhugaðri virkjunarframkvæmd,
  3. áætlað afl virkjunar, eftir því sem kostur er,
  4. áætluð orkugeta virkjunar, eftir því sem kostur er,
  5. áætlaður stofn- og rekstrarkostnaður virkjunar, eftir því sem kostur er,
  6. áform um tengingu við flutningskerfi raforku,
  7. upplýsingar um áætlaðan tengikostnað háspennulína við flutningskerfið, eftir því sem kostur er,
  8. fyrirliggjandi rannsóknir og heimildir um virkjunarsvæði,
  9. upplýsingar um stöðu og flokkun þeirra vatnshlota sem fyrirhuguð framkvæmd nær til ásamt þeim umhverfismarkmiðum sem um þau gilda skv. lögum um stjórn vatnamála, nr. 36/2011, og þeirra áætlana sem byggja á þeim,
  10. upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti hlutaðeigandi landeiganda, sveitarfélagi eða sveitarfélögum hafi verið kynnt fyrirhuguð virkjunaráform.

14. gr.Gögn sem fylgja skulu beiðnum um umfjöllun um virkjun fallvatna.

Eftirtalin gögn og upplýsingar skulu, auk gagna skv. 13. gr., ávallt fylgja beiðnum um umfjöllun um virkjun fallvatna:

  1. áætlað rennsli með há- og lágmarki og tíðnidreifing þess í lónum, farvegum neðan þeirra og veitukerfum þar sem við á,
  2. áætluð yfirborðshæð og vatnsborðssveifla í lónum í tíma og rúmi,
  3. fyrirliggjandi rannsóknir og áætlanir um aurburð og ísmyndun, eftir því sem við á,

15. gr.Gögn sem fylgja skulu beiðnum um umfjöllun um virkjun háhitasvæða.

Eftirtalin gögn og upplýsingar skulu, auk gagna skv. 13. gr., ávallt fylgja beiðnum um umfjöllun um virkjun háhitasvæða:

  1. markmið um sjálfbærni virkjunar, þ.e. samspil nýtingar og endingartíma,
  2. áform um niðurdælingu og förgun affallsvatns og möguleg áhrif á grunnvatnshlot,
  3. áform um öflun og förgun kælivatns,
  4. markmið um losun brennisteinsvetnis og staðbundinn hámarksstyrk þess í andrúmslofti,
  5. ytri mörk þess jarðhitakerfis sem fyrirhuguð nýting á að ná til ef þau eru þekkt.

16. gr.Gögn sem fylgja skulu beiðnum um umfjöllun um virkjun vindorku.

Eftirtalin gögn og upplýsingar skulu, auk gagna skv. 13. gr., ávallt fylgja beiðnum um umfjöllun um virkjun vindorku:

  1. áætlaður heildarfjöldi vindmylla ásamt áætlaðri staðsetningu þeirra í landi á virkjunarsvæðinu,
  2. tæknilegar upplýsingar um einstakar vindmyllur þar sem fram kemur afl, áætluð hæð meginmasturs og hæð vindmylluspaða í efstu stöðu ásamt áætluðu framkvæmda- og athafnasvæði við hverja vindmyllu,
  3. þrívíddarmyndir sem sýna vindorkuverið frá a.m.k. fjórum sjónarhornum af jörðu niðri,
  4. sýnileikagreining eða sýnileikakort þar sem fram kemur hvernig vindorkuverið sést í landslagi í 10, 20, 30 og 50 km fjarlægð,
  5. áform um öflun jöfnunarorku þar sem það á við,
  6. áætluð áhrif vegna ljósmengunar af virkjunarmannvirkjum,
  7. áætluð áhrif á hljóðvist,
  8. kort sem sýnir búsvæði og farleiðir fugla á og við virkjunarsvæðið og niðurstöður fuglarannsókna liggi þær fyrir,
  9. fyrirliggjandi rannsóknir um vindafar,
  10. áætluð heildarstærð vindorkuvers ef gert er ráð fyrir fleiri áföngum en sótt er um.

17. gr.Gögn sem heimilt er að kalla eftir á síðari stigum.

Áður en verkefnisstjórn gerir tillögu um flokkun virkjunarhugmyndar í nýtingarflokk áætlunarinnar skal verkefnisstjórn óska eftir greinargerð frá umsækjanda um áætluð áhrif framkvæmda á umhverfismarkmið þeirra vatnshlota sem verða fyrir beinum og óbeinum áhrifum af framkvæmdunum, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011.

Verði slíkar breytingar á virkjunarhugmynd af hálfu umsækjanda við meðferð hennar hjá verkefnisstjórn að hún telur þörf á viðbótargögnum og upplýsingum til að hægt sé að flokka virkjunarhugmyndina skv. lögum nr. 48/2011, skal hún fara fram á við Umhverfis- og orkustofnun að hún óski eftir þeim viðbótargögnum sem þörf er á frá umsækjanda vegna breytinganna.

18. gr.Frekari gögn.

Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að óska eftir frekari gögnum, sem nauðsynleg þykja, umfram það sem að framan greinir enda telji stofnunin að slík gögn séu nauðsynleg til að unnt sé að flokka virkjunarhugmyndina skv. lögum nr. 48/2011.

V. KAFLI Rannsóknir og upplýsingaöflun verkefnisstjórnar.

19. gr.Gagnaöflun og rannsóknir verkefnisstjórnar.

Rannsóknir og upplýsingaöflun verkefnisstjórnar og faghópa skal taka mið af því að um heildstætt frummat er að ræða. Markmið upplýsingaöflunar skal því fyrst og fremst vera að búa til heildarmynd af verndar- og nýtingargildi landsvæða og áhrifum orkunýtingar.

Teljist gögn um einstaka virkjunarhugmyndir ófullnægjandi að mati verkefnisstjórnar þrátt fyrir að gögn uppfylli IV. kafla reglugerðar þessarar skal verkefnisstjórn láta safna viðbótargögnum og vinna úr þeim áður en eiginlegt matsferli hefst.

Verkefnisstjórn skal afla nauðsynlegra viðbótarupplýsinga og gagna sem mælt er fyrir um í 10. gr. a. laga nr. 48/2011, um sérstök sjónarmið við mat á virkjunarhugmyndum til nýtingar vindorku, og ekki er gerð krafa um að þurfi að fylgja beiðni um umfjöllun um virkjunarhugmynd skv. IV. kafla reglugerðarinnar.

VI. KAFLI Meðferð gagna.

20. gr. Skil og varðveisla gagna.

Heimilt er að fara fram á við umsækjanda að gögnum samkvæmt reglugerð þessari verði skilað á stafrænu formi.

Verkefnisstjórn skal leitast við að öll gögn vegna áætlunarinnar séu varðveitt á stafrænu formi.

21. gr. Aðgangur að gögnum og upplýsingum.

Fundargerðir, niðurstöður og önnur gögn um meðferð einstakra virkjunarhugmynda skulu vera aðgengilegar almenningi á sérstakri gagnagátt á vefsíðu verkefnisstjórnarinnar eða öðrum rafrænum miðli eftir því sem lög heimila.

Um aðgang að gögnum og upplýsingum fer samkvæmt 11. gr. laga nr. 48/2011, upplýsingalögum, nr. 140/2012, og öðrum lögum eftir því sem við á.

VII. KAFLIKærumeðferð og gildistaka.

22. gr.Kæra til æðra stjórnvalds.

Um kærur vegna ákvarðana Umhverfis- og orkustofnunar fer samkvæmt stjórnsýslulögum, nr. 37/1993.

23. gr.Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í ákvæði 12. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, og öðlast hún þegar gildi.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um virkjunarkosti í verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 530/2014.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. september 2026.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild - Útgáfudagur: 15. október 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica