970/2026
Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna.
I. KAFLIMarkmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr.Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að setja fram skýrar forsendur og aðferðafræði við kortlagningu óbyggðra víðerna á Íslandi. Kortlagningin skal byggja á hlutlægum viðmiðum og forsendum um áhrif mannvirkja og annarrar landnotkunar á lífríki, náttúrulega ferla og upplifun af víðernum.
Kort með afmörkun óbyggðra víðerna skal ekki fela í sér bann eða takmörkun á framkvæmdum heldur vera til upplýsingar fyrir stjórnvöld við stefnumótun um verndun landslags og aðra landnotkun, þar á meðal við verndun óbyggðra víðerna, gerð skipulagsáætlana, áætlunar um vernd og orkunýtingu, undirbúning friðlýsinga, stjórnunar- og verndaráætlana friðlýstra svæða, mat á umhverfisáhrifum og við ákvarðanatöku um leyfisveitingar.
2. gr.Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til kortlagningar óbyggðra víðerna á landi á grundvelli skilgreiningar 19. tl. 1. mgr. 5. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, hvort sem um er að ræða eignarlönd, afrétti eða þjóðlendur í skilningi laga um þjóðlendur, nr. 58/1998.
3. gr.Skilgreiningar.
Í reglugerð þessari er merking orða og hugtaka sem hér segir:
- Ágengi: Áhrif af mannvirkjum eða öðrum tæknilegum ummerkjum þar sem eiginleikar þeirra, sýnileiki eða samanlögð áhrif, geta talist óviðeigandi í óbyggðum víðernum og þar með gengið gegn þeim markmiðum laga að náttúran fái að þróast án truflunar og álags af mannlegum umsvifum á slíkum svæðum.
- Óbyggð víðerni: Svæði í óbyggðum sem er að jafnaði a.m.k. 25 km² að stærð eða þannig að hægt sé að njóta þar einveru og náttúrunnar án truflunar af mannvirkjum eða umferð vélknúinna farartækja og að jafnaði í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum og uppbyggðum vegum, sbr. 19. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.
- Mannvirki og tæknileg ummerki: Hvers kyns mannvirki og önnur tæknileg ummerki sem hafa áhrif á upplifun, einveru og náttúru. Hér undir falla meðal annars byggingar, orkuver, raflínur, fjarskiptamöstur, vegir, stíflur og miðlunarlón, framræsluskurðir og önnur sambærileg manngerð fyrirbæri sem talin eru upp í 5. gr.
- Skerðingarsvæði: Það svæði umhverfis ágeng mannvirki eða tæknilegt ummerki þar sem áhrifa þeirra gætir með þeim hætti að það telst skerða eiginleika óbyggðra víðerna. Stærð svæðisins ræðst af eðli og umfangi mannvirkjanna og ágengi þeirra eins og kveðið er á um í 5. gr.
- Uppbyggður vegur: Varanlegur vegur sem byggður er upp með jarðvegsfyllingum og/eða skeringum með notkun þungavinnuvéla, oft með efni sem er frábrugðið næsta umhverfi og oftast hærri en landið umhverfis. Uppbyggður vegur tekur almennt takmarkað tillit til náttúrulegra hindrana í landinu og fylgir sjaldnast legu lands. Slíkur vegur er oft bundinn varanlegu slitlagi eða aðfluttu malar yfirborðslagi og eru ár og lækir almennt brúaðir eða þveraðir á ræsi. Slíkur vegur sætir að öllu jöfnu reglulegu viðhaldi enda ætlaður umferð allra bifreiða. Undir þetta falla þjóðvegir, sveitarfélagsvegir og aðrir vegir sem uppfylla framangreind skilyrði.
- Óuppbyggður vegur: Einfaldur vegur, slóði eða troðningur sem hefur myndast við akstur í áranna rás eða er til kominn vegna tiltekinna staðbundinna þarfa. Slíkur vegur fylgir legu landsins og er ekki byggður upp með aðfluttu efni nema e.t.v. á stuttum köflum og í undantekningartilvikum. Vegurinn sætir ekki sama viðhaldi og uppbyggður vegur þótt hann kunni stöku sinnum að vera skafinn með veghefli án aðflutts efnis. Vegurinn er almennt ekki brúaður þótt á honum kunni að vera einföld ræsi til varnar vatnstjóni. Vegurinn er almennt einungis fær jeppum með fjórhjóladrifi eða stærri bifreiðum og getur oft verið ófær eða lokaður yfir vetrartímann. Vegir sem falla undir 4. gr. reglugerðar um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd, nr. 260/2018, falla oft undir þennan flokk vega.
- Sýnileiki: Sá eiginleiki mannvirkis að vera sýnilegt frá tilteknum stað í landslagi, metinn með stafrænni sýnileikagreiningu, sbr. 6. gr.
- Landbúnaðarsvæði: Svæði sem er eða hefur verið nýtt til landbúnaðar með jarðvinnslu, framræslu, sáningu eða annarri ræktun sem breytir varanlega ásýnd og eðli landsins, svo sem tún, akrar eða stórfelldir framræsluskurðir. Sama á við um landgræðsluskóga, nytjaskóga og önnur landgræðslusvæði þar sem notaðar eru framandi tegundir.
II. KAFLIKortlagning og aðferðafræði.
4. gr.Aðferðafræði kortlagningar.
Kortlagning óbyggðra víðerna skal framkvæmd með landfræðilegri upplýsingatækni og byggja á eftirfarandi meginþrepum:
- Allt land sem fellur innan skerðingarsvæða mannvirkja og tæknilegra ummerkja, eins og þau eru skilgreind í 5. gr., er í upphafi útilokað frá því að teljast óbyggð víðerni.
- Gerð er sýnileikagreining, sbr. 6. gr., frá þeim mannvirkjum og tæknilegu ummerkjum sem valda skerðingu. Svæði þar sem mannvirki og tæknileg ummerki eru ekki sýnileg geta, þrátt fyrir að vera innan skerðingarsvæðis þeirra, talist til óbyggðra víðerna við kortlagningu, að uppfylltum öðrum skilyrðum reglugerðarinnar.
- Þau samfelldu svæði sem eftir standa og ná að jafnaði lágmarksstærð skv. 8. gr. teljast til óbyggðra víðerna við kortlagningu.
5. gr.Viðmið um skerðingu vegna mannvirkja og tæknilegra ummerkja.
Við kortlagningu skv. 4. gr. skal miða við eftirfarandi skerðingarsvæði (radíus frá mannvirki eða belti beggja vegna línulegs mannvirkis), nema sýnileikagreining skv. 6. gr. leiði til annars:
1. Ýmsir almennir innviðir og mannvirki:
- Íbúðarhús eða býli með heilsárs búsetu: 3 km.
- Sumarhús, fjárhús, hesthús, geymslur, bátaskýli og sambærileg mannvirki: sjá stærðarviðmið í c-lið 2. tl.
- Eyðibýli, uppistandandi án hvers kyns búsetu: 1 km; önnur eyðibýli: sjá stærðarviðmið í c-lið 2. tl.
- Tóftir: engin skerðing.
- Uppbyggður vegur með bundnu slitlagi: 5 km til beggja handa frá miðlínu vegar.
- Uppbyggður vegur án bundins slitlags: 2,5 km til beggja handa frá miðlínu vegar.
- Óuppbyggður vegur, slóði: engin skerðing.
- Fjarskiptamastur, heimarafstöð, veðurmælingamastur og önnur sambærileg möstur að 14,9 metrum að hæð: engin skerðing; frá 15-29,9 metra að hæð: 2 km; frá 30-59,9 metra að hæð: 3 km; yfir 60 metra að hæð: 5 km.
- Sjókvíar: 3 km.
- Flóðavarnargarðar og snjóflóðavarnir: 2 km.
- Námur, tippar og landfyllingar að 2 ha: engin skerðing; frá 2-5 ha: 2 km; yfir 5 ha: 5 km.
2. Innviðir vegna ferðaþjónustu og annarrar starfsemi:
- Hótel og gistihús með veitingasölu til almennings: 5 km.
- Önnur þjónustumannvirki með sölu til almennings, s.s. veitingahús, verslanir, kláfar eða orkuafgreiðsla: 5 km.
-
Fjallaskálar, starfsmannahús, gangnamannakofar, veiðihús, snyrtingar, sæluhús og sambærileg gisting, þrepaskipt eftir stærð og gistirýmum ef þau eru fyrir hendi:
- Mjög litlar byggingar (0-24 m², < 10 gistirými): 0 km.
- Litlar byggingar (25-49 m², 10-19 gistirými): 2 km.
- Stórar byggingar (50-199 m², 20-99 gistirými): 3 km.
- Mjög stórar byggingar (> 200 m², > 100 gistirými): 5 km.
- Tjaldsvæði með rafmagnstengingum fyrir húsbíla eða þjónustubyggingu að 49 m²: 2 km. Sé um að ræða stærri þjónustubyggingu gilda undirliðir iii og iv í c-lið eftir því sem við á.
- Tjaldsvæði án rafmagnstenginga fyrir húsbýla og með þjónustubyggingu að 24 m² valda ekki skerðingu. Sé um að ræða stærri þjónustubyggingu gilda undirliðir ii-iv í c-lið eftir því sem við á.
- Göngustígar með bundnu slitlagi: 1 km til beggja handa. Aðrir göngustígar eða göngubrýr valda ekki skerðingu.
3. Orkuvinnsla, orkuflutningar og sambærilegir innviðir:
- Flutningslínur raforku (háspennulínur í lofti), 66 kV eða stærri: 2,5 km til beggja handa; 132 kV: 3,5 km til beggja handa; 220 kV: 5 km til beggja handa.
- Aðrar flutningslínur raforku eða fjarskipta í lofti: 2 km til beggja handa.
- Flutningslínur raforku eða fjarskipta í jörðu: engin skerðing. Skilji framkvæmd eftir sig óafturkræf sár á yfirborði sem ekki gróa: 1 km til beggja handa.
- Vindmyllur frá 15-59,9 metra að hæð miðað við spaða í efstu stöðu: 5 km; frá 60-99,9 metra: 10 km; yfir 100 metra: 15 km.
- Stöðvarhús orkuvera, starfsmannahús, áhaldahús, gufuveitur og aðrir meiriháttar innviðir jarðvarma- eða vatnsaflsvirkjana sem eru ofanjarðar: 5 km frá ytri mörkum athafnasvæðis.
- Stíflur og miðlunarlón: 5 km frá yfirborði lóns. Árfarvegir með stýrðu flæði utan þessara marka: engin skerðing.
4. Landbúnaður og önnur landnotkun:
- Landbúnaðarsvæði, sbr. 8. tölul. 3. gr.: svæðin sjálf teljast ekki til víðerna og valda að auki 2 km skerðingu út frá ytri mörkum sínum.
- Endurheimtusvæði þar sem eingöngu eru notaðar innlendar tegundir: engin skerðing
6. gr. Mat á sýnileika.
Sýnileikagreining skal framkvæmd með viðurkenndri landfræðilegri aðferðafræði og miðast við sjónarhorn frá 1,75 metra hæð yfir jörðu. Nota skal bestu fáanlegu landhæðargögn sem Náttúrufræðistofnun hefur yfir að ráða.
Þar sem landslag, svo sem fjöll eða dalir, byrgir sýn á mannvirki eða önnur tæknileg ummerki sem tilgreind eru í 5. gr., er heimilt að afmarka skerðingarsvæði mannvirkisins samkvæmt greininni við þann hluta svæðisins þar sem mannvirkið er sýnilegt. Sá hluti svæðisins telst þá ekki til óbyggðra víðerna. Undantekning frá þessu eru stakir sýnileikaflákar innan svæða sem að öðrum kosti teldust óbyggð víðerni enda sé flatarmál hvers fláka minna en 2% af heildarflatarmáli skerðingarsvæðisins, afmarkaðs frá mannvirkinu sjálfu samkvæmt reglugerð þessari.
Fyrir vindmyllur og önnur sérstaklega há mannvirki skal sýnileikagreining ná til allt að 15 km fjarlægðar. Ef slíkt mannvirki er ágengt úr þeirri fjarlægð séð frá svæði sem að öðru leyti teldist til víðerna, telst það svæði ekki til víðerna við kortlagningu.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. skal skerðingarsvæði mannvirkja skv. 1.-4. tölul. 5. gr. aldrei vera minna en 1 km að radíus frá mannvirkinu eða ytri mörkum athafnasvæðis óháð sýnileika, nema mælt sé fyrir um í málsgreininni að þau hafi enga skerðingu í för með sér. Fyrir mannvirki sem falla undir e-lið 1. tölul., a-b-lið 2. tölul. og a-, d-, e- og f-lið 3. tölul. 5. gr. skal lágmarks skerðingarsvæði vera 2,5 km. Sýnileikagreining skal notuð til að afmarka skerðingu út fyrir þessi lágmarkssvæði, allt að þeim mörkum sem sett eru í 5. gr.
7. gr. Söfnunaráhrif.
Þegar fleiri en eitt mannvirki eða tæknilegt ummerki eru staðsett á sama svæði, skal heildar skerðingarvegalengd teljast frá ytri mörkum svæðisins. Þegar um er að ræða mörg smærri mannvirki, sbr. 2. tl. 5. gr., skal skerðingarvegalengd svæðisins fara eftir samanlögðum fermetrafjölda bygginga og gistirýma á svæðinu.
Við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, sbr. lög nr. 111/2021, á mörkum óbyggðra víðerna skal sérstaklega taka tillit til samanlagðra áhrifa nýrra framkvæmda með þeim sem fyrir eru.
8. gr. Lágmarksstærð og frávik.
Að jafnaði skal svæði ná 25 km² samfelldu flatarmáli til að teljast óbyggt víðerni á korti samkvæmt reglugerð þessari.
Heimilt er að víkja frá lágmarksstærð skv. 1. mgr. ef svæði býr yfir sérstöku verndargildi, svo sem vegna landslagsheilda, einstakrar náttúru eða menningarminja, eða myndar mikilvæga tengingu milli stærri víðernasvæða. Slík ákvörðun skal tekin af ráðherra að fenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og skal rökstudd sérstaklega.
III. KAFLIFramkvæmd, ábyrgð og birting.
9. gr.Ábyrgð og framkvæmd kortlagningar.
Náttúrufræðistofnun er falið að annast kortlagningu óbyggðra víðerna í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
Við framkvæmd kortlagningar skal Náttúrufræðistofnun beita viðurkenndri landupplýsingatækni og nýta, eftir því sem kostur er, bestu fáanlegu gögn sem stofnunin hefur yfir að ráða hverju sinni um staðsetningu og eðli mannvirkja og tæknilegra ummerkja. Stofnunin ákveður, með hliðsjón af markmiðum og ákvæðum reglugerðar þessarar, tæknilegar kröfur til gagna, nákvæmni þeirra, úrvinnslu og aðferðafræði við kortlagningu.
Kortlagning samkvæmt reglugerð þessari byggist á þeim gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir og eru stofnuninni aðgengileg á hverjum tíma. Gögn sem stofnunina skortir til að kortleggja svæði skal hún safna og halda utan um með markvissum hætti. Skortur á fullnægjandi upplýsingum um einstök mannvirki eða tæknileg ummerki skal þó ekki einn og sér koma í veg fyrir að kortlagning fari fram eða að kort sé birt. Berist Náttúrufræðistofnun ný, nákvæmari eða áreiðanlegri gögn skal stofnunin taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til að uppfæra kortlagningu viðkomandi svæðis út frá hinum nýju upplýsingum.
Eigendum og rekstraraðilum mannvirkja skv. 5. gr. og þeir opinberu aðilar sem hafa yfir að ráða slíkum upplýsingum er skylt að veita Náttúrufræðistofnun aðgang að þeim til að ná markmiðum reglugerðar þessarar.
Náttúrufræðistofnun skal hafa reglubundið samráð við Náttúruverndarstofnun og aðrar fagstofnanir eftir þörfum við gerð og endurskoðun kortsins.
10. gr.Birting og aðgengi.
Náttúrufræðistofnun skal birta og viðhalda korti yfir óbyggð víðerni á vefsíðu sinni. Kortið og undirliggjandi gögn skulu vera aðgengileg með rafrænum hætti á opnu og stöðluðu formi, án endurgjalds og í landupplýsingagátt stofnunarinnar, til notkunar fyrir alla sem þess óska.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur Náttúrufræðistofnun, að því marki sem lög heimila, takmarkað birtingu eða aðgang að einstökum grunngögnum þegar það er talið nauðsynlegt vegna þjóðaröryggis, öryggis mikilvægra innviða eða annarra lögmætra trúnaðarhagsmuna. Slík takmörkun skal ekki ganga lengra en nauðsynlegt er og skal, eftir því sem unnt er, birta þau úrvinnslugögn eða niðurstöður sem kortlagningin byggist á án þess að grunngögn verði opinberuð.
11. gr.Endurskoðun.
Kort yfir óbyggð víðerni skal endurskoðað í heild sinni eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
Uppfæra skal kortið á afmörkuðum svæðum oftar ef tilefni gefst, svo sem vegna nýrra gagna og upplýsinga, nýrra meiriháttar framkvæmda, fjarlægingar eldri mannvirkja eða mannvirkja sem reist eru til tímabundinna nota. Sveitarfélög, stofnanir, skipulagsyfirvöld, náttúruverndarsamtök eða aðilar sem hafa beina hagsmuni af slíkri endurskoðun geta óskað eftir henni telji þau að framangreind atvik eigi við.
IV. KAFLIGildistaka o.fl.
12. gr.Gildistaka og fyrsta útgáfa korts.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 73. gr. a. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, öðlast þegar gildi.
Fyrsta útgáfa korts yfir óbyggð víðerni samkvæmt reglugerð þessari skal liggja fyrir eigi síðar en 12 mánuðum eftir gildistöku hennar.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 31. ágúst 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfudagur: 10. september 2026