Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1451/2025

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1566/2024 um loftslags- og orkusjóð.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. mgr. orðast svo: Til styrkhæfra ökutækja teljast ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi. Ökutæki sem hafa verið fyrst skráð erlendis, en eru nýskráð á Íslandi innan 12 mánaða frá fyrstu skráningu erlendis, geta fengið að hámarki 80% af þeim styrk sem veittur er fyrir ökutæki með fyrstu skráningu á Íslandi. Ökutæki sem eru fyrst skráð erlendis meira en 12 mánuðum frá nýskráningu hérlendis eru ekki styrkhæf. Hámarks kaupverðmæti ökutækja í flokkum M1 og N1 er 10.000.000 kr. Sé kaupverðmæti umfram hámarkið er ökutæki ekki styrkhæft.
  2. 3. mgr. orðast svo: Sé ekki sótt um styrk innan 12 mánaða frá nýskráningu ökutækis fellur styrkhæfi ökutækisins niður. Til nýrra ökutækja teljast þau er fá fyrstu skráningu hér á landi.

2. gr.

Á eftir 2. málsl. 3. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar kemur: Í tilfelli umsókna fyrir ökutæki í flokki M2, M3, N2 og N3 er umsækjanda heimilt að skila inn umboði eiganda þar sem ráðstöfun styrks er heimiluð á bankareikning annars lögaðila.

3. gr.

22. gr. reglugerðarinnar orðast svo ásamt fyrirsögn:

Styrkfjárhæðir og -hlutföll.

Eftirfarandi skulu vera hámarks styrkhlutföll og styrkfjárhæðir í úthlutunum stjórnar Loftslags- og orkusjóðs:

Fólksbílar (M1) - nýir 2025 2026 2027 2028 Hlutföll
Söluverð < 10 M 900.000 kr. 500.000 kr. 500.000 kr. 0 kr. Á ekki við
Söluverð > 10 M 0 kr. 0 kr. 0 kr. 0 kr. Á ekki við
Atvinnubílar 2025 2026 2027 2028 Hlutföll
Sendibílar (N1), söluverð < 10 M 500.000 kr. 500.000 kr. 500.000 kr. 0 kr. Á ekki við
Lítil vörubifreið (N2) 3,5-7 tonn 5.000.000 kr. 2.500.000 kr. 500.000 kr. 0 kr. 33%
Lítil vörubifreið (N2) 7-12 tonn 10.000.000 kr. 5.000.000 kr. 2.500.000 kr. 2.500.000 kr. 33%
Vörubifreið II (N3) 12-18 tonn 10.000.000 kr. 10.000.000 kr. 10.000.000 kr. 10.000.000 kr. 33%
Vörubifreið II (N3) 18-26 tonn 15.000.000 kr. 15.000.000 kr. 15.000.000 kr. 15.000.000 kr. 33%
Vörubifreið II (N3) > 26 tonn 20.000.000 kr. 20.000.000 kr. 20.000.000 kr. 20.000.000 kr. 33%
Hópferðabílar 2025 2026 2027 2028 Hlutföll
M2 (10 farþegar +) < 5 tonn 5.000.000 kr. 5.000.000 kr. 2.500.000 kr. 2.500.000 kr. 33%
M3 (10 farþegar +) > 5 tonn 10.000.000 kr. 15.000.000 kr. 15.000.000 kr. 15.000.000 kr. 33%
M3 almennings­vagnar/strætó 30.000.000 kr. 30.000.000 kr. 20.000.000 kr. 20.000.000 kr. 33%

Í tilfelli fólksbíla (M1), sendibíla (N1), lítilla vörubifreiða (N2) og lítilla hópferðabíla (M2) er miðað við dagsetningu samþykktrar umsóknar að lokinni nýskráningu. Í tilfelli vöru- og hópferðabifreiða (N3, M3) er miðað við dagsetningu bindandi kauptilboðs fyrir samþykkt styrks en greiðsla styrks kemur til við nýskráningu hjá Samgöngustofu.

Fjöldi styrkveitinga Loftslags- og orkusjóðs til hreinorkuökutækja takmarkast af því sem nemur ígildi 150 ökutækjaeininga frá 1. janúar 2026. Einingafjöldi vegna vöru- og hópferðabifreiða er skilgreindur með eftirfarandi hætti:

  1. A-flokkur: Vörubifreið II (N3) 12-18 tonn: 0,5 einingar.
  2. B-flokkur: Vörubifreið II (N3) 18-26 tonn og hópferðabílar (M3) > 5 tonn og 10 farþega: 1 eining.
  3. C-flokkur: Vörubifreið II (N3) < 26 tonn og (M3) almenningsvagnar/strætó: 1,5 einingar.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga um Loftslags- og orkusjóð, nr. 76/2020, tekur gildi 1. janúar 2026.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti 19. desember 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild - Útgáfudagur: 23. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica