Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

1132/2025

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1566/2024 um loftslags- og orkusjóð.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýr VI. kafli og breytast önnur kafla- og greinanúmer í samræmi við það.

VI. KAFLI Styrkir til nýsköpunar í jarðvarmanýtingu.

33. gr. Styrkir til nýsköpunar í jarðvarmanýtingu.

Stjórn Loftslags- og orkusjóðs annast úthlutun styrkja til nýsköpunarverkefna á sviði jarðvarmanýtingar samkvæmt ákvörðun og áherslum ráðherra og stjórnvalda hverju sinni.

Markmið styrkveitinga samkvæmt þessum kafla er að efla samkeppnishæfni Íslands á sviði jarðvarmanýtingar, ýta undir nýsköpun og tækniþróun, og styðja við loftslagsmarkmið og sjálfbæra orkunýtingu.

Styrkir sem veittir eru skulu miða að aukinni nýtingu jarðhita og fjölbreyttari orkuöflun, bæði beint og óbeint.

Um veitingu styrkja fer samkvæmt reglugerð þessari og skal í því ferli óska eftir greinargerð ráðgefandi fagráðs með tillögu um forgangsröðun umsókna, sbr. 11. gr.

Auk framangreindra sjónarmiða er heimilt við mat á umsóknum og ákvörðun úthlutunar að taka tillit til sjónarmiða er fram koma í 2. mgr. 10. gr. eftir því sem við á.

34. gr. Auglýsingar.

Stjórn Loftslags- og orkusjóðs skal auglýsa hvenær og hvernig verður opið fyrir umsóknir um styrki til nýsköpunar í jarðvarmanýtingu. Í auglýsingu skulu koma fram upplýsingar um áherslur styrkveitinga, skilyrði styrkhæfni og leiðbeiningar um hvar og hvernig skuli sækja um.

35. gr. Styrkhæfi verkefna og áherslur.

Styrkir verða veittir til orkufyrirtækja og annarra fyrirtækja sem nýta jarðvarmaauðlindina. Styrkupphæð fyrir hvert verkefni getur numið allt að þriðjungi af heildarkostnaði, gegn mótframlagi umsækjanda. Umsækjendur skulu leggja fram mótframlag sem nemur a.m.k. tveimur þriðju hluta kostnaðar.

Styrkveitingum er ætlað að styðja við verkefni sem falla að hlutverki sjóðsins og markmiðum þessa kafla, einkum eftirfarandi áherslum:

A. Ný tækni til raforkuframleiðslu úr jarðvarma.

Verkefni á sviði djúpborunar, Enhanced Geothermal Systems (EGS), raforkuframleiðslu úr lágvarma, nýrrar bortækni o.fl.

B. Fjölnýting jarðhita.

Verkefni sem auka verðmætasköpun með beinni eða óbeinni fjölnýtingu jarðhita, t.d. með nýjum framleiðsluferlum eða notkunarformum, sérstaklega þar sem loftslagsáhrif eru jákvæð og verkefni hafa ekki áður notið stuðnings úr öðrum opinberum sjóðum.

C. Nýting jarðhita til húshitunar.

Nýjar aðferðir við nýtingu jarðhita, m.a. með varmadælum, aukinni nýtni eða hagkvæmni, og uppbyggingu sem dregur úr rafhitunarkostnaði og styður við fjölgun notenda. Almennar boranir eða hefðbundin uppbygging dreifikerfa teljast ekki styrkhæfar.

Við mat á umsóknum skal meðal annars horft til þjóðhagslegrar hagkvæmni, byggðasjónarmiða og áhrifa á nærsvæði, auk gæða gagna og undirbúnings.

36. gr. Umsóknir.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  1. Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, þátttakendur og samstarfsaðila.
  2. Nafn, kennitala, netfang og símanúmer tengiliðar við sjóðinn.
  3. Lýsing á verkefninu og því hvernig það samræmist markmiðum og áherslum Loftslags- og orkusjóðs samkvæmt þessum kafla.
  4. Lýsing á þekkingu á jarðhita viðkomandi svæðis, með tilvísun í fyrri rannsóknir eftir því sem við á.
  5. Tíma- og verkáætlun.
  6. Sundurliðuð fjárhagsáætlun verkefnis og upplýsingar um fjármögnun.
  7. Lýsing á hagkvæmni verkefnis, að teknu tilliti til síðari áfanga.

Umsóknir skulu sendar í gegnum umsóknargátt Loftslags- og orkusjóðs.

37. gr. Um fjárhæðir og greiðslur styrkja.

Styrkhlutfall skal vera að hámarki 1/3 af heildarkostnaði verkefnisins. Skipting greiðslna og önnur framkvæmd styrkveitinga fer samkvæmt ákvæðum II. kafla reglugerðar þessarar, eftir því sem við á.

Ráðherra er heimilt að ákveða hámarksstyrkfjárhæðir í hverri úthlutun.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga um Loftslags- og orkusjóð nr. 76/2020, öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. október 2025.

Jóhann Páll Jóhannsson.

Stefán Guðmundsson.

B deild - Útgáfudagur: 3. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica