Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

580/2025

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 414/2014 um stafrænar landupplýsingar.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2431 frá 24. október 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1089/2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/2/EB að því er varðar rekstrarsamhæfi landgagnasafna og -þjónustu, sem vísað er til í tölulið 1je, I. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2024, þann 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, 2025/EES/10/78, bls. 1058-1095.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtalinni EES-gerð:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2431 frá 24. október 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1089/2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/2/EB að því er varðar rekstrarsamhæfi landgagnasafna og -þjónustu.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 44/2011 um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar og öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica