Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

579/2025

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:

  w) Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2555 frá 21. mars 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar hexabrómósýklódódekan, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2025, þann 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 68-70.
  x) Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2570 frá 22. júlí 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar metoxýklór, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2025, þann 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 71-73.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum gerðum:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2555 frá 21. mars 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar hexabrómósýklódódekan.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2570 frá 22. júlí 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar metoxýklór.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 43. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2025.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica