1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
| 89) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2055 frá 25. september 2023 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi tilbúnum fjölliðuörögnum) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tl. 12zc, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 58/2025, þann 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 74-95. | |
| 90) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2492 frá 23. september 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 440/2008 að því er varðar prófunaraðferðir til að laga þær að tækniframförum, sem vísað er til í tl. 12zc, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2025, þann 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 594-603. |
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2025.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.