Fara beint í efnið

Prentað þann 8. maí 2024

Breytingareglugerð

1345/2023

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 935/2018 um BAT (bestu aðgengilegu tækni) o.fl. á sviði atvinnurekstrar sem haft getur í för með sér mengun.

1. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1442 frá 31. júlí 2017 um að fastsetja niðurstöður um bestu, fáanlegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB, vegna stórra brennsluvera, sem vísað er til í tl. 1fq, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 246/2017, þann 15. desember 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87 frá 17. desember 2020, bls. 11-92.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2117 frá 21. nóvember 2017 um að fastsetja niðurstöður um bestu, fáanlegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB, vegna framleiðslu á lífrænum íðefnum í miklu magni, sem vísað er til í tl. 1fr, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2018, þann 23. mars 2018. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87 frá 17. desember 2020, bls. 128-177.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1147 frá 10. ágúst 2018 um að fastsetja niðurstöður um bestu, aðgengilegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB, vegna úrgangsmeðhöndlunar, sem vísað er til í tl. 1fs, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2019, þann 8. febrúar 2019. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 1-53.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1135 frá 10. ágúst 2018 um að ákvarða gerð, framsetningu og tíðni upplýsinga sem aðildarríki skulu gera aðgengilegar að því er varðar skýrslugjöf um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB um losun í iðnaði, sem vísað er til í tl. 1ft, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2019, þann 29. mars 2019. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60 frá 16. september 2021, bls. 1-8.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1442 frá 31. júlí 2017 um að fastsetja niðurstöður um bestu, fáanlegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB, vegna stórra brennsluvera.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2117 frá 21. nóvember 2017 um að fastsetja niðurstöður um bestu, fáanlegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB, vegna framleiðslu á lífrænum íðefnum í miklu magni.
  3. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1147 frá 10. ágúst 2018 um að fastsetja niðurstöður um bestu, aðgengilegu tækni (BAT), samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB, vegna úrgangsmeðhöndlunar.
  4. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1135 frá 10. ágúst 2018 um að ákvarða gerð, framsetningu og tíðni upplýsinga sem aðildarríki skulu gera aðgengilegar að því er varðar skýrslugjöf um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/75/ESB um losun í iðnaði.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 33. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2023.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.