Fara beint í efnið

Prentað þann 9. maí 2024

Breytingareglugerð

1298/2023

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.

1. gr.

Einn stafliður bætist við 33. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2023/838 frá 23. mars 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB, sem vísað er til í lið 21as í XX. viðauka við EES-samninginn, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 295/2023 frá 27. október 2023. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti nr. 83, 16. nóvember 2023, bls. 526-676.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirtalinni gerð:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2023/838 frá 23. mars 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 748/2009 að því er varðar uppfærslu á skránni yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem tilgreind er í I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

Reglugerð þessi tekur þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2023.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.