Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

587/2026

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/826 um kröfur varðandi visthönnun raf- og rafeindatækja til heimilis- og skrifstofunota með tilliti til orkunotkunar þeirra þegar slökkt er á þeim, þau eru í reiðuham og þegar þau eru í nettengdum reiðuham samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB og um niðurfellingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1275/2008 og (EB) nr. 107/2009.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 6za í kafla IV í II. viðauka og lið 26zb í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025, frá 5. desember 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/826 frá 17. apríl 2023 um kröfur varðandi visthönnun raf- og rafeindatækja til heimilis- og skrifstofunota með tilliti til orkunotkunar þeirra þegar slökkt er á þeim, þau eru í reiðuham og þegar þau eru í nettengdum reiðuham samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB og um niðurfellingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1275/2008 og (EB) nr. 107/2009.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 16. apríl 2026.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/826 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 323-341.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, nr. 42/2009, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla brott reglugerð nr. 417/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1275/2008 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun raf- og rafeindatækja til heimilis- og skrifstofunota með tilliti til aflþarfar þeirra í reiðuham eða þegar slökkt er á þeim og reglugerð nr. 418/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 107/2009 um kröfur varðandi visthönnun á einföldum aðgangskössum.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 15. maí 2026.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Jón Ásgeirsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica