Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

585/2026

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/994 um rekstrarleg atriði varðandi vörugagnagrunninn sem komið var á fót samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 4zc í kafla IV í II. viðauka og lið 11zc í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 frá 5. desember 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/994 frá 2. apríl 2024 um rekstrarleg atriði varðandi vörugagnagrunninn sem komið var á fót samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369.

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 16. apríl 2026.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/994 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 464-476.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, nr. 72/1994, öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. maí 2026.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Jón Ásgeirsson.

B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica