Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 6zb í kafla IV í II. viðauka og lið 26zc í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 frá 5. desember 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1670 frá 16. júní 2023, um kröfur varðandi visthönnun að því er varðar snjallsíma, aðra farsíma en snjallsíma, þráðlausa síma og spjaldtölvur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/826.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 16. apríl 2026.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1670 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 342-388.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, nr. 42/2009, öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. maí 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Jón Ásgeirsson.
B deild - Útgáfudagur: 28. maí 2026